Landsmót UMFÍ 50+ 2025 – Fjör, hreyfing og samvera!
Dagana 27. - 29. júní 2025 munu Siglufjörður og Ólafsfjörður fyllast af orku og gleði þegar Landsmót UMFÍ 50+ fer fram! Mótið er haldið í samstarfi við Ungmenna- og íþróttasamband Fjallabyggðar (UÍF), UMFÍ, og Fjallabyggð og er þetta viðburður sem enginn ætti að missa af.
Undirbúningur er hafinn!
Mikil spenna ríkir í Fjallabyggð eftir að samstarfssamningur um framkvæmd mótsins var undirritaður á formannafundi UÍF þann 13. febrúar. Fjölmargir frá íþróttahreyfinguni í Fjallabyggð sáu sér færi á að mæta, sem sýnir hversu mikil eftirvænting ríkir fyrir þessu einstaka móti.
Allir geta verið með!
Landsmót UMFÍ 50+ er ekki bara íþróttakeppni heldur ævintýraleg samkoma fyrir þátttakendur af öllum hæfileikastigum. Hvort sem þú ert vanur keppandi eða vilt einfaldlega njóta hreyfingar og samveru, þá er þetta mótið fyrir þig. Engin skilyrði eru fyrir þátttöku nema að vera 50 ára eða eldri á árinu – og allir eru velkomnir, hvort sem þeir eru skráðir í íþróttafélag eða ekki. Fyrirhugað er að boðið verði upp á einhverja opna keppnisflokka og opnast þar tækifæri fyrir þá sem ekki hafa náð þessu eftirsótta aldursviðmiði.
Ógleymanleg upplifun í einstöku umhverfi!
Fjallabyggð er fullkominn vettvangur fyrir mótið, með sinni hrífandi náttúru, góðum aðstæðum og gestrisni heimamanna. Keppnir, æfingar og skemmtidagskrá munu tryggja þátttakendum ógleymanlega helgi. Hvort sem þú vilt prófa krafta þína í klassískum íþróttagreinum, skora á vini í skemmtilegum hópagreinum eða einfaldlega njóta lífsins með samferðafólki, þá er mótið fyrir þig!
Komdu og vertu með!
Ekki missa af Landsmóti UMFÍ 50+ 2025 – komdu og taktu þátt í þessu einstaka ævintýri!
Skráning og nánari upplýsingar verða birtar á næstu vikum, svo fylgstu með og gerðu þig tilbúinn fyrir fjöruga og eftirminnilega daga í Fjallabyggð!